Baráttunni lýkur aldrei

1,366 views · Published 27 July 2017 · 0:38 · Indexed 4 November 2026

Channel: Icelandair · 2017 · Travel & Events

Watch on YouTube

Þátttöku stelpnanna okkar á EM 2017 er lokið en baráttunni lýkur aldrei. Þær munu snúa aftur til leiks enn sterkari en áður – eins og þeim einum er lagið – og við hlökkum strax til að fylgja þeim í næstu orrustu. Sem betur fer er ekki ýkja langt í hana því undankeppni HM 2019 hefst í september.

Stemningin fyrir landsliðinu í sumar var frábær en aldrei hafa eins margir flogið út til að styðja stelpurnar okkar á EM auk þess sem baráttukveðjum rigndi yfir stelpurnar á vefnum okkar, www.icelandair.is/ostodvandi. Við viljum þakka öllum sem sendu liðinu kveðju.

Síðast en ekki síst viljum við þakka stjörnunum sjálfum, stelpunum okkar, fyrir að lífga upp á sumarið með óstöðvandi baráttugleði. Fyrir Ísland!


Sjá meira: https://goo.gl/LzDXGU

Join the Icelandair Community Online:

Facebook: https://www.facebook.com/Icelandair/
Twitter: https://twitter.com/Icelandair
Instagram: https://www.instagram.com/icelandair/
Spotify: https://open.spotify.com/user/icelandair

More from this channel