Prins Belfast - Partíþokan
1,909 views · Published 20 October 2011 · 3:51 · Indexed 30 September 2026
Channel: FM Belfast · 2011 · Music
FM Belfast og Prinspóló gefa í dag út lagið Partíþokan. Lagið kom upprunalega út á safnskífunni Hitaveitan í hitteðfyrra í flutningi Prinspóló og Skakkamanage. En nú hafa Árni Rúnar Hlöðversson úr FM Belfast og Svavar Pétur Eysteinsson, Prinspóló, blásið nýju lífi í lagið í tilefni þess að um næstu helgi verður farin tónleikaferð nokkurra hljómsveita norður á Akureyri. Hljómleikarnir bera sama heiti og lagið og fara fram á Græna Hattinum laugardaginn 22. október. Auk Prinspóló og FM Belfast munu hljómsveitirnar Borko og Sin Fang stíga á stokk. Það verður því hnausþykk og löðrandi stemming fyrir norðan um næstu helgi. Sjáumst í þokunni!
More from this channel
-
0:16
FM Belfast performing Back & Spine @ Mál & Menning Bookstore
-
0:29
FM Belfast performing Par Avion @ Mál & Menning Bookstore
-
0:49
FM Belfast performing Par Avion @ Mál & Menning Bookstore
-
2:11
FM Belfast performing Frequency @ Iceland Airwaves 2007
-
0:31
MC Pluto @ Iceland Airwaves 2007
-
0:28
Animal Collective @ Webster Hall 2007
-
2:59
múm playing Moon Pulls
-
0:39
FM Belfast @ Cakeshop