Kjuregej Alexandra Argunova heiðruð á degi diplómatans
178 views · Published 14 February 2017 · 9:49 · Indexed 1 November 2026
Channel: Julius Valsson · 2017 · Film & Animation
Þann 10. febrúar ár hvert er Dagur dipómatans haldinn hátíðlegur í Rússlandi og í þeim löndum þar sem Rússland er með sendiráð. Dagurinn heitir í raun „Dagur hins vinnandi diplómata“. Í tilefni dagsins var í dag haldin móttaka í rússneska sendiráðinu í Reykjavík þar sem saman komu sendiherrar þeirra erlendra þeirra ríkja, sem eru með sendiráð sín hér á landi. Tilgangurinn er, að fulltrúar landanna hittist með óformlegum hætti, haldi daginn hátíðlegan og efli þannig samskipti og vináttu sín á milli. Íslensk kona, Kjuregej Alexandra Argunova hlaut í þetta sinn sérstaka viðkenningu frá rússneska utanríkisráðuneytinu fyrir það mikla og ötula starf, sem hún hefur unnið til að kynna menningu heimalands síns Jakútíu og til að efla samskipti Íslandi og Rússlands. Viðurkenninguna afhenti sendiherra Rússlands á Íslandi, Anton V. VasilIev. Kiruregej er fædd árið 1938 í Jakútíu og hefur búið hér á landi og starfað að listsköpun í yfir 50 ár. Hún lauk BA prófi í leiklist frá Russian Academy of Theatre Arts árið 1966 og stundaði að því loknu listnám við elsta listháskóla Spánar, Escola Massana de Barcelona. Hún flutti til Íslands árið 1966 og giftist það sama ár Magnúsi Jónssyni listmálara, sem hún hafði kynnst á námsárum sínum í Moskvu. Eignuðust þau þrjú börn. Kiruregej er listform óviðkomandi því hún hefur stundað leiklist, myndlist, dans og söng og kennt fjölmörgum Íslendingum bæði ungum og fullorðnum og tekið þátt í óteljandi listaviðburðum hér á landi á undanförnum árum. Hún er því vel að þessari viðurkenningu komin.
More from this channel
-
12:49:17
Jólaglögg Kjötborgar 2006
-
3:30
Devil's Train at the Reykjavik Blues Festival 2010
-
4:48
Vinir Dóra, Café Rósenberg, Reykjavík, Iceland, September 10, 2010
-
4:02
KK - 25th Anniversary Concert - Rehearsals
-
2:38
Jón Kr. Ólafsson 70 ára - FÍH salurinn 25. september 2010
-
1:37
Amon Amarth - Pursuit of vikings - KJJ - Custom Telecaster 2010
-
1:16
Maggi Eiríks og KK
-
1:16
Óveður?